Nú er opið fyrir umsóknir í Startup Landið, sjö vikna viðskiptahraðal sem ætlaður er frumkvöðlum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðunum. Hraðallinn hefst 18. september og lýkur með lokaviðburði 30. október þar sem þátttakendur kynna verkefni sín. Startup Landið veitir þátttakendum aðgang að sérfræðiráðgjöf, tengslaneti og möguleikum á fjármögnun. Markmiðið er að styðja við vöxt og þróun nýsköpunarverkefna sem eru komin af hugmyndastigi, ...